Quadrapassel
Quadrapassel kemur úr klassíska fallblokkaleiknum, Tetris. Markmið leiksins er að búa til heilar láréttar línur af kubbum, sem munu hverfa. Kubbarnir koma í sjö mismunandi gerðum úr fjórum kubbum hver: einn beinn, tveir L-laga, einn ferningur og tveir S-laga. Kubbarnir falla frá efstu miðju skjásins í handahófi. Þú snýrð kubbunum og færir þá yfir skjáinn til að sleppa þeim í heilar línur. Þú skorar með því að sleppa kubbum hratt og klára línur. Eftir því sem stigið þitt verður hærra færðu stig og kubbarnir falla hraðar. …